Á námskeiðinu kennir Ásgeir Ásgeirsson gítarkennari sambærilegt efni og farið er yfir á 10 vikna gítarnámskeiði í staðarnámi.

Meðal efnis :   Farið er í handstöðu og setu með hljóðfærið, vinnukonugrip og skiptingu þeirra.  Þvergrip og helstu tækniatriði þeirra. Hægri handar „strömm” og helstu takt afbrigði.  Hvernig á að hjálpa sér sjálf(ur) við að lesa út úr söngbókum, hvernig finnur maður laglínu til að syngja einföld lög. Pentatonik tónstigi og notkun hans við spuna. Lög kennd á einfaldan hátt og nemendur geta spilað með.  Einföld kennsla fyrir byrjendur og lengra komna, kennt á einfaldan hátt án allra nótna.   Kennsluefnið er á formi  ítarlegra kennslumyndbanda og ítarefnis á textaformi.

Ert þú vanur / vön ?  Smelltu hér fyrir ítarlegri námskeiðslýsingu. 


Vertu með í vetur!                           

 

Í vetur munum við einnig bjóða upp á 2 framhaldsnámskeið.