Námskeiðin fara fram með aðferðum sem allir ráða við.   Námskeiðin hefjast vikulega (á þriðjudögum) & þá færð þú sendan aðgang að kennsluefni vikunnar.   Kennslustund vikunnar sérð þú í formi myndbands á netinu & svo færð þú  „Vikubréfið“ þar sem við tökum saman helstu efnisatriði vikunnar, þ.e. það sem kennarinn fór yfir í myndbandinu,  gítargripin (skýringarmynd) sem við lærum í viðkomandi viku & söngbók með því lagi / texta og gripa-skiptingum á réttum stað.  Vinnulagið er nokkurnvegin svona : 


Við tiltökum svo nánar á námskeiðinu sjálfu hversu oft & lengi við mælum með því að þú æfir efni hverrar viku.

Við skömmtum efnið út á 10 vikum til að halda ákveðnum dampi í náminu en athugaðu að þú hefur aðgang að efninu í 12 mánuði - & þú ákveður sjálf/ur hversu mikin tíma  þú gefur þér í hvern vikuskamt. 

Ekkert stress & eintóm gleði!