Ásgeir Ásgeirsson GítarkennariÁsgeir Ásgeirsson útskrifaðist frá tónlistarskóla FÍH 1999 bæði sem einleikari og við kennaradeild skólans. Þaðan lá leið hans í tónlistarháskólann í Amsterdam. Ásgeir hefur kennt á gítar við Tónlistarskóla félags íslenska hljómlistarmanna, F.Í.H. síðan 2001, tónlistarskóla Garðabæjar, tónskóla Eddu Borg, Tónheima sem og verið skólastjóri í Tónsölum í Kópavogi. Sem gítarleikari hefur Ásgeir leikið með öllum helstu tónlistarmönnum þjóðarinnar m.a. Páli Óskari Hjálmtýssyni, Ragnheiði Gröndal, Jóhönnu Guðrúnu og Ragga Bjarna. Ásgeir hefur leikið á yfir 50 hljómplötur, leikið í sjónvarpi og útvarpi ýmist jazz, popp og rokk & komið fram á tónlistarhátíðum á Íslandi sem og í Skandinavíu

